Þessi réttur er hollur og mjög bragðgóður. Hann er tilvalinn í nestisboxið daginn eftir og það má vel sleppa fisknum eða nota kjúkling í staðinn.
Heilhveitinúðlur með kóríander og sesamlaxi
2016-07-04 18:51:13
Innihaldsefni
- 1 pakki heilhveiti núðlur frá Blue Dragon (fást t.d. í Krónunni)
- 1 cm ferskt engifer
- 1 geiralaus hvítlaukur
- 1 rauð eða gul paprika í strimlum
- ½ box alfaspírur
- 200 gr spergilkál eða blómkál
- 1 box sveppir
- 6 stönglar ferskur aspas ef vill
- ½ búnt ferskt kóríander
- 1 msk sesamfræ
- 1 msk saxaðar salthnetur ef vill
- 1/3 tsk Chili explosion krydd í kvörn (fæst t.d. í Bónus)
- 2 msk sojasósa
- ½ msk fiskisósa
- 2 msk sesamolía
- 3 msk kókosolía
- Salt eftir smekk
Leiðbeiningar
- Sjóðið núðlurnar skv. leiðbeiningum – passið að ofsjóða ekki. Sigtið núðlurnar og setjið í skál ásamt sesamolíunni og hrærið.
- Pressið hvítlaukinn út í kókosolíuna og rífið engiferið á rifjárni. Hrærið vel saman, setjið á pönnu og kveikið undir.
- Setjið allt grænmetið á pönnu nema paprikuna og baunaspírurnar. Léttsteikið grænmetið og slökkvið svo undir.
- Setjið fiskisósuna og sojasósuna út á.
- Hellið blöndunni af pönnunni og yfir núðlurnar.
- Saxið kóríanderið og setjið út á ásamt paprikunni og baunaspírunum.
- Toppið með sesamfræjum og salthnetum.
- Berið á borð ásamt limebátum.
Athugasemdir
- Ef þú vilt hafa réttinn matarmeiri eða próteinríkari er tilvalið að bæta við hann kjúklingi eða ofnbökuðum lax.
EatRVK https://www.eatrvk.is/
Hægeldaður sesamlax
2016-07-07 15:38:56
Serves 4
Innihaldsefni
- 800 gr lax
- 2 msk appelsínusafi
- ½ msk rifið ferskt engifer
- 3 msk sojasósa
- ½ tsk Chili exlplosion krydd
- 3 msk sesamfræ
Leiðbeiningar
- Hrærið öllu saman nema fræjunum og hellið yfir fiskinn.
- Stráið sesamfræjunum yfir og bakið í ofni á 140 gráðum í 20-30 mínútur, eftir þykkt fisksins.
EatRVK https://www.eatrvk.is/
Þessi uppskrift af heilhveitinuðlum með sesamlaxi er virkilega hvetjandi og sýnir hversu auðvelt er að elda hollan og bragðgóðan mat heima. Mér líkar hvernig höfundurinn útskýrir einföld skref til að ná fullkomnum smekk. Slíkar greinar hjálpa fólki að njóta matargerðarinnar á nýjan hátt. Frábært væri ef fleiri deildu svona hugmyndum. Sjá nánar á Telkom University Jakarta.