Heimsins besti hummus

Þennan hummus fékk ég hjá systur minni ekki fyrir löngu en hún er snillingur í eldhúsinu. Dóttir hennar og tengdasonur eru bæði vegan og því hefur eldamennska hennar breyst mikið síðustu mánuði og nú eldar hún hvern dásemdar grænmetisréttinn á fætur öðrum. Ég ætla að leyfa ykkur njóta þess á næstu mánuðum og deila með ykkur uppáhalds vegan uppskriftunum frá henni. Þegar ég fékk þennan hummus hjá henni þá hætti ég ekki að brosa, hann er dásamlegur! Skrítið hvað góður matur getur glatt hjartað! Enginn verður svikinn af því að gera þennan hummus og svo er hann líka svo fljótgerður. Ég ber hann fram með góðu brauði og að mínu mati er súrdeigsbrauðið frá The Coocoo’s Nest það besta í bænum og passar fullkomnlega með þessum dýrðar hummus. Hann er einnig stórkostlegur á vefjur. Það má líka sleppa kjúklingabaununum og setja meiri olíu og þá ertu komin með snilldar sósu með salati eða til að marinera kjúkling upp úr.

_DSC4140

Mynd: Íris Ann

Heimsins besti hummus
Bragðmikill hummus með austurlensku ívafi.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 1 dós kjúklingabaunir, skolaðar og sigtaðar
  2. 3 msk hnetusmjör - ég notaði gróft lífrænt hnetusmjör frá Rapunzel
  3. 1-2 msk Sriracha sósa (hún er mjög sterk svo farið varlega og smakkið til)
  4. 1 msk maukaður engifer, ferskur
  5. 2 litlir hvítlauksgeirar
  6. 1/2-1 msk hunang eða maple-síróp/agave fyrir vegan (má sleppa)
  7. 1 msk ólífuolía
  8. 3-4 msk af klakavatni
  9. 1/2 bolli salthnetur, gróft saxaðar
  10. 2 vorlaukar saxaðir smátt
  11. 1 búnt kóríander, saxað
  12. Safi úr 1/2 lime, má sleppa
  13. Salt og pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
  1. Setjið kjúklingabaunir, hnetusmjör, Sriracha sósuna, engifer, hvítlaukinn, hunangið (eða maple-sýrópið/agave), salt og pipar í matvinnsluvél og blandið vel saman.
  2. Með vélina í gangi hellið ólífuolíunni ásamt klakavatninu í, þetta hjálpar blöndunni að verða dásamlega mjúk og góð.
  3. Setjið blönduna í skál og kreistið lime safa yfir og blandið svo saman við hana hnetunum, kóríanderinu og vorlauknum með sleif.
EatRVK https://www.eatrvk.is/

Mynd: Íris Ann

Mynd: Íris Ann

3 Comments on “Heimsins besti hummus

  1. Æðisleg uppskrift. Þessi er orðin ein af uppáhalds.

  2. Pingback: Hummus með karamellu-lauk | EatRVK

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *