Ís í morgunmat!!!!

Fara í uppskrift

Við höfum verið svo heppin með veður undanfarið og þá langar manni alltaf í ís, ég var eitthvað að skoða myndir á Instagram hjá vinum og rakst þá á þessa uppskrift hjá vinkonu minni, henni Elínu Arndísi Gunnarsdóttur sem er alltaf að bralla eitthvað skemmtilegt í eldhúsinu sínu í Noregi. Titillinn á myndunum var "Íspinnar í morgunmat" og auðvitað fóru bragðlaukarnir mínir á fullt enda íssjúk þessa sólardaga. Það þarf þó ekki bara að njóta þessara gullmola á morgnanna heldur eru þeir upplagðir hvenær sem er. Ég fékk hana til að deila með okkur uppskriftinni og síðar í vikunni kemur svo önnur útgáfa frá henni, og vonandi jafnvel eitthvað meira. Þessir pinnar eru einnig vegan, mjólkurlausir og sykurlausir svo allir ættu að gleðjast. 

Úr eldhúsinu

Íspinnar í morgunmat!!!!

Hráefni

Merktu við það sem er komið.

Aðferð

  1. Hrært í matvinnsluvél þangað til msilkimjúkt. Passar í allt að 8 ísform.
  2. Bræða 50g af 70% súkkulaði og setja yfir þegar ísinn er orðinn frosinn. Það má líka borða bara beint upp úr matvinnsluvélinni og setja í kexform - þá er ísinn eins og úr vél!

Við eldhúsborðið

Athugasemdir

Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.

Skildu eftir athugasemd

Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.