Súkkulaðinámskeið með Brad Pitt
Mynd 2: Lakkrísunaðurinn er óreglulegur í laginu en reglulega góður
Mynd 4: Sjáið hvað þeir glansa!




Ég skellti mér á frábært konfektnámskeið um daginn hjá Nóa Siríus. Þar sýndu og kenndu Axel Þorsteinsson (e.þ.s. hinn íslenski Brad Pitt) og Ingibjörg Helga Ingólfsdóttir, konditorar hvernig gera á konfekt á einfaldan hátt. Þetta var vel skipulagt námskeið þar sem kenndir voru helstu þættir konfektgerðar, svo sem að tempra mismunandi súkkulaði, hvernig maður fyllir mola, fær fallegan glans á konfektið og margt fleira. Eftir fræðsluna fékk maður að gera mola sjálfur, fylla og auðvitað að smakka sem er alltaf skemmtilegast.
Eftir konfektgerðina voru fallegu molarnir settir í box og fékk hver þáttakandi um 25-30 mola með sér heim. Þegar heim var komið fór ég beint á netið að leita að hvar ég gæti fengið falleg harðplasta konfektmót, því þau gefa þennan fallega glans á konfektmolana eins og Nói Siríus eru frægir fyrir. Það er einnig mun auðveldara að gera fyllta mola eftir að hafa farið á námskeiðið en þar lærði ég að fylla með sprautupoka. Mæli með að þið kíkjið á þetta námskeið en upplýsingar má finna á Facebooksíðu Nóa Síríus. Ef þið komist ekki þá er um að gera að fara á Apótekið og smakka dásemdirnar sem hann Axel er að búa til þar. Ég fékk leyfi til að deila með ykkur uppskrift af uppáhaldsmolanum mínum - og ekki spillir fyrir hve auðveldur hann er!
Úr eldhúsinu
Lakkrís- og hnetusúkkulaðimoli
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og blandið svo hnetum og kurli vel saman við.
- Setjið blönduna á smjörpappír með teskeið.
- Þú ræður auðvitað stærðinni á molunum en mín reynsla var að best væri að hafa þá eins og tíkall að stærð, úlfarnir mínir voru þá aðeins lengur að klára þá.
- Setjið molana í kæli í um einn tíma, ef hægt er að bíða svo lengi.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/12/sukkuladinamskeid-med-islenskum-brad-pitt/



Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.