Fljótandi geðheilsa
Servétturnar dásamlegu keypti ég í Húsgagnahöllinni en Bloomingville fæst víða og er eitt uppáhalds merkja minna


Þegar ég hef átt erfiðan dag, góðan dag eða bara dag (þó ekki þegar kennsla er daginn eftir) finnst mér dásamlegt að fá mér einn Aperol Spritz til að gleðja geð og bragðlauka. Þennan drykk kynnti systir mín fyrir mér og eftir það var ekki aftur snúið. Þetta er einföld blanda af Aperol (sem fæst í Ríkinu og er blóðappelsínu-bitter (bragðbetri frændi Campari)), cava/freyðivíni/prosecco, appelsínusneiðum, klökum og dassi af sódavatni. Mín útgáfa af Aperol er þó oftast með hvítvíni (á það oftar til en freyðivín) og aðeins meira af sódavatni en orginal uppskriftin segir til um. Ef þú ætlar að nota freyðivín er Tommasi Prosecco í uppáhaldi.
Tóm hamingja!
Úr eldhúsinu
Aperol Spritz
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Blandið saman freyðivíni (eða hvítvíni), Aperol og sódavatni ásamt klökum og sneið af appelsínu.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/10/svona-held-eg-gedheilsu-i-vetrarfriinu/




Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.