Jarðarberjafylltar múffur


Það er alltaf gaman að baka nýjar og öðruvísi múffur. Ég mæli með að prufa sig áfram með sultur í þessari uppskrift. Mér finnst berjasultur bestar og í þetta sinn notaði ég jarðarberja- og rabarbarasultu sem ég gerði um daginn.
Úr eldhúsinu
Jarðarberjafylltar múffur
Deigið dugir í 12 múffur
Skjárinn slekkur á sér eins og venjulega.
Hráefni
Merktu við það sem er komið.
Aðferð
- Blandið saman öllum þurrefnum í skál.
- Bræðið smjörið og setjið til hliðar.
- Setjið jógúrt, egg og vanillu í aðra skál og blandið vel saman með pískara.
- Blandið blautefnunum saman við þurrefnin, bætið því næst smjörinu við og blandið vel saman.
- Penslið múffuformin og setjið eina kúfaða matskeið í hvert form.
- Setjið eina tsk af sultu ofan á og svo restina af deginu yfir hverja múffu.
- Bakið í 180 gráðu heitum ofni í um 20 mínútur.
- Látnar kólna og sigtið flórsykri yfir.
EatRVK · https://eatrvk.is/2015/10/jardaberjafylltar-muffur/





Við eldhúsborðið
Athugasemdir
Vertu fyrst til að skilja eftir athugasemd.
Skildu eftir athugasemd
Netfangið þitt verður ekki birt. Athugasemdir bíða samþykkis.